Norskur sjómaður var lofaður í gær fyrir að ná að fjarlægja ólar sem fastar voru við mjaldur. Talið er að mjaldurinn hafi sloppið úr rússneskri herstöð. Á síðustu dögum hefur mjaldurinn nálgast fiskibáta fyrir utan strönd Finnmerkur í Norður-Noregi.
Sjómanninum Joar Hesten tókst seint á föstudag að fjarlægja ólarnar sem fastar voru við hvalinn. Þá höfðu nokkrir starfsmenn norsku Fiskistofunnar gert tilraun til að fjarlægja ólarnar með litlum árangri, samkvæmt norska ríkissjónvarpinu, NRK.
Á vef NRK má sjá myndband og fjölda mynda af björgun hvalsins.
Hesten klæddi sig í viðlagabúning áður en hann stökk út í ískaldann sjóinn til að hjálpa hvalnum. „Þegar ég var í vatninu kom hvalurinn mjög nálægt mér og ég náði að teygja mig í hann og leysa fremstu ólina,“ sagði Hesten við NRK.
Hesten sagði að erfiðara hefði verið að leysa hina ólina. Hann náði þó loks að festa krók í ólina og hún losnaði um leið og hvalurinn synti í burtu.
Hvalafræðingurinn Audun Rikardsen var hæstánægður með frammistöðu Hesten. Rikardsen sagði að hvalurinn hefði líklega ekki verið fullvaxinn og hefði því liðið skaða af því að vaxa með ólarnar á sér.
Rikardsen hafði verið í sambandi við rússneskan kollega sinn sem taldi að hvalurinn hefði verið notaður af rússneska hernum.
Vitað er að bandaríski herinn hefur þjálfað höfrunga og önnur sjávarspendýr allt frá árinu 1960, í hernaðarlegum tilgangi, til dæmis tundurduflaleit.