Fyrrverandi bandarískur hermaður, sem er grunaður um að hafa skipulagt stóra hryðjuverkaárás skammt frá borginni Los Angeles, hefur verið handtekinn.
Með árásinni ætlaði hann að hefna fyrir nýlegt fjöldamorð í borginni Christchurch á Nýja-Sjálandi.
Mark Steven Domingo, 26 ára múslimi sem barðist í Afganistan, á yfir höfði sér ákærur um hryðjuverk fyrir að ætla að drepa fjölda fólks í sprengjuárás.
Hann var handtekinn á föstudaginn eftir hafa fengið sent til sín tæki sem hann hélt að væri sprengja. Lögreglumaður sem villti á sér heimildir afhenti honum tækið.
Frumrannsókn yfirvalda á Sri Lanka sýndi á dögunum fram á að hryðjuverkaárásirnar í ríkinu á páskadag, sem kostuðu að minnsta kosti 310 mannslíf, voru hefndarverk vegna árásanna í Christchurch.