Yfirvöld á Sri Lanka hafa bannað að fólk hylji andlit sín í kjölfar sjálfvígsárása sem gerðar voru í landinu á páskadag. Rúmlega 250 manns létu lífið í árásunum og hundruð særðust.
Maithruipala Sisirsena, forseti Sri Lanka, greindi frá því í dag að neyðarlög væru notuð til að koma slíkum hömlum á frá og með deginum í dag. Greindi forsetaskrifstofan frá því að öll þau klæði sem „hindri að hægt sé að bera kennsl“ á fólk verði bönnuð til að tryggja þjóðaröryggi.
BBC segir hvorki niqab-slæður né búrkur sem múslimskar konur klæðast sumar hverjar hafa verð nefndar sérstaklega, en banninu sé engu að síður beint gegn þessum fatnaði.
Mikill viðbúnaður er enn á Sri Lanka í kjölfar árásanna og hafa um 150 manns nú verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Faðir og tveir bræður meints skipuleggjanda sprengjuárásanna, Zahram Hashim, voru þá drepnir í aðgerðum öryggissveita á föstudaginn, að sögn lögreglu.
Hashim, sem sprengdi sjálfan sig upp á hóteli í höfuðborg Sri Lanka, Colombo, stofnaði íslamska hópinn National Tawheed Jamath, NTJ, sem hefur nú verið bannaður. Hópnum hefur verið kennt um árásirnar þótt hann hafi ekki lýst ábyrgðinni á hendur sér. Lögreglan hefur nú þegar ráðist inn í höfuðstöðvar NTJ í bænum Kattankudy.
Yfirvöld hafa þó varað við að fleiri vígamenn gangi enn lausir og segjast nú leita 140 stuðningsmanna vígasamtakanna Ríkis íslams, en samtökin lýstu yfir ábyrgð á árásunum.
Um 21 milljón manna býr á Sri Lanka og eru um 10% þeirra múslimar. Einungis lítill hluti múslimakvenna í landinu er þó talinn klæðast búrku eða bera niqab.