Bandaríski uppljóstrarinn Chelsea Manning er laus úr fangelsi eftir að hafa afplánað 62 daga refsivist fyrir að neita að bera vitni fyrir dómi í tengslum við rannsókn á uppljóstrunarsíðunni Wikileaks.
Manning, sem var fangelsuð fyrir að leka trúnaðargögnum um hernað Bandaríkjamanna í Írak árið 2010 á meðan hún gegndi herþjónustu í bandaríska hernum, verður að mæta aftur fyrir dóm 16. maí en það var dómari í Virginia sem úrskurðaði hana í gæsluvarðhald í mars fyrir að neita að bera vitni.
Manning var fundin sek árið 2013 um njósnir fyrir að leka leyniupplýsingum til Wikileaks og var dæmd í 35 ára fangelsi af herdómstóli en þá hafði hún setið í gæsluvarðhaldi frá árinu 2010. Barack Obama, þáverandi Bandaríkjaforseti, mildaði dóminn yfir Manning í janúar 2017 og var hún látin laus úr fangelsi í maí það sama ár eftir að hafa afplánað á bak við lás og slá í sjö ár.