„Þetta er eina skipið með norsku skráningarnúmeri [IMO-númeri] sem okkur er kunnugt um að hafi lent í þessu atviki,“ segir Christine Korme, upplýsingafulltrúi Samtaka útgerða (n. Rederiforbundet) í Noregi, við norska dagblaðið VG í dag eftir að norska olíutankskipið Andrea Victory varð fyrir árás á Oman-flóanum í gær með þeim hætti að óþekktum hlut var siglt eða skotið á skut skipsins svo vel sér á því.
Andrea Victory er í eigu útgerðarinnar Champion Tankers AS í Bergen og vegur 47.000 dauðvigtartonn (n. dødvekttonn). Skipið kom til hafnarborgarinnar Fujairah í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á laugardaginn og var atlagan að því gerð degi síðar. Útgerðin í Noregi skýrði frá þessu í fréttatilkynningu í dag en vill ekki tjá sig nánar um málið.
Rekstur Andrea Victory er í höndum útgerðarinnar Thome Ship Management en skipið á sér heimahöfn á Isle of Man. Talsmaður þeirrar útgerðar, sem VG ræðir við, segir áhöfnina óhulta og ástandið um borð öruggt. Lagið kom á skipsskrokkinn þar sem tómur tankur var fyrir innan og skaðinn því minni en hefði getað orðið.
Yfirvöld í Sádi-Arabíu greina frá því að tvö önnur olíuskip hafi orðið fyrir árásum úti fyrir ströndum Sameinuðu arabísku furstadæmanna á sama tíma en ekki hefur fengist staðfest hverjar skemmdir voru unnar þar né hvers kyns árásirnar voru.
Norska siglingamálastofnunin (n. Sjøfartsdirektoratet) hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hún hvetur áhafnir allra norskra skipa á Oman-flóanum til að hafa varann á eftir atburðina. Áhöfn Andrea Victory aðstoðar nú lögreglu í Fujairah við rannsókn málsins og hafa yfirvöld í Íran auk þess farið fram á rannsókn eftir árásirnar á olíuskipin þrjú.
„Við hækkum nú viðbúnaðarstigið fyrir norsk skip á svæði sem nær til umhverfis þessarar hafnarborgar [Fujairah] á flóanum og biðjum áhafnir þeirra að gæta fyllsta öryggis á næstunni. Okkur er ekki kunnugt um hvort hættan er yfirstaðin eða enn viðvarandi,“ segir Dag Inge Aarhus, upplýsingafulltrúi siglingamálastofnunarinnar, við VG í dag.