Foreldrar fransks manns, Vincents Lambert, sem hefur verið haldið á lífi í dauðadái í tíu ár munu á morgun reyna að fá lækninn sem annast soninn dæmdan frá því að halda áfram að annast hann. Samkvæmt áætlun á að hætta meðferð sonarins á morgun.
Markmið foreldranna er að nafn læknisins verði þegar í stað strokað af læknaskrám landsins og vilja þau einnig að hann verði saksóttur fyrir glæpsamleg brot. Er hringiða lögsóknanna til marks um örvæntingu foreldranna, en eins og áður segir á samkvæmt áætlun að hætta meðferð sonarins á morgun. Þá hafa foreldrarnir einnig haft samband við Emmanuel Macron Frakklandsforseta í tilraun til þess að fá afstöðu læknisins hrundið.
Málið hefur haft mikil áhrif á stórfjölskylduna en stór hluti hennar er sammála lækninum Vincent Sanchez sem telur að eina mannlega leiðin sé að hætta meðferð sonarins.