Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti í dag að Julian Assange, stofnandi Wikileaks, hefði verið ákærður fyrir að brjóta gegn njósnalöggjöf Bandaríkjanna vegna birtingar á leynilegum hernaðar- og stjórnsýslugögnum, en ráðuneytið neitar því að Assange sé blaðamaður, samkvæmt frétt AFP um málið.
Alls kynnti dómsmálaráðuneytið 17 nýjar ákærur á hendur Assange, meðal annars fyrir að hjálpa Chelsea Manning að stela leynilegum gögnum Bandaríkjastjórnar og fyrir að afhjúpa heimildarmenn Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum og Kína, sem nefndir voru á nafn í skjölunum sem Wikileaks opinberaði.