Ástralskur unglingur sem er þekktur sem eggjadrengurinn hefur fært fórnarlömbum árásar í tveimur moskum í Christchurch tæplega 100 þúsund Ástralíudali, 8,6 milljónir króna, en fénu var safnað til að greiða lögfræðikostnað hans. Þegar ljóst var að hann yrði ekki ákærður ákvað hann að gefa peningana til þeirra sem eiga um sárt að binda eftir hryðjuverkið.
William Connolly kastaði eggjum í ástralska öldungadeildarþingmanninn Fraser Anning eftir að Ástrali drap 51 gest í tveimur moskum í mars. Connolly kramdi egg á höfði Anning á blaðamannafundi í Melbourne 16. mars. Anning svaraði fyrir sig með því að slá Connolly utan undir tvívegis. Daginn áður sagði Anning í ræðu á þingi að ástæðan fyrir árásunum þann sama dag í Christchurch væri heimild til handa múslimum til að flytja til landsins. Vísar hann þar til hryðjuverka sem kostuðu 50 manns lífið en árásarmaðurinn aðhyllist yfirburði hvíta kynstofnsins.
Anning náði ekki kjöri í þingkosningum í Ástralíu nýverið.