Þrír fórust og sextán saknað

Björgunarstarf hefur verið í fullum gangi við bakka Dónár í …
Björgunarstarf hefur verið í fullum gangi við bakka Dónár í Búdapest. AFP

Þrír eru látnir og sextán er saknað eftir að skemmtibát hvolfdi og hann sökk í Dóná í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands.

Að sögn ungverska ríkissjónvarpsins hefur fimmtán manns verið bjargað.

Slysið varð skammt frá þinghúsi landsins í hjarta borgarinnar eftir að báturinn hafði rekist á annan bát.

AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert