Rúmlega 400 manns hafa verið handtekin fyrir að taka þátt í mótmælagöngu í miðborg Moskvu og er Alexei Navalny, leiðtogi rússnesku stjórnarandstöðunnar, í hópi þeirra. Var handtökunum ætlað að leysa upp gönguna, sem efnt hafði verið til til að hvetja til pólitískra umbóta í kjölfar þess að rannsóknarblaðamaðurinn Ivan Golunov var handtekinn í síðustu viku eftir að hafa verið sakaður um fíkniefnasölu.
AFP-fréttveitan segir handtöku Golunov hafa vakið reiði hjá mörgum Rússum, sem hafi með mótmælunum viljað þrýsta a raunverulegar umbætur á spilltu dóms- og réttarkerfi landsins. Golunov var sleppt úr haldi í gær.
Mun minni hópur mótmælenda tók þátt í mótmælunum í dag, en þann dag fagna Rússar þjóðhátíðadegi sinum og voru ekki allir sáttir við að mótmælt yrði þann dag.
Segir AFP óeirðalögreglu hafa tekið harkalega á sumum mótmælendum og hafa barið aðra með lögreglukylfum, en nokkrir mótmælendur hrópuðu slagorð gegn Vladimír Pútín Rússlandsforseta.
Sagði lögregla fyrr í dag að um 1.200 manns hefðu tekið þátt í mótmælunum og að um 200 þeirra hefðu verið handteknir.
Að sögn talskonu Navalnys á hann allt að 30 daga fangavist yfir höfði sér.