Talið er nokkuð víst að krónprins Sádi-Arabíu og fleiri háttsettir ráðamenn hafi borið ábyrgð á morði blaðamannsins Jamal Khashoggi. Vísbendingar þess efnis eru taldar nokkuð öruggar, að sögn sendifulltrúa Sameinuðu þjóðanna. BBC greinir frá.
Khashoggi var myrtur á ræðismannaskrifstofu Sádi-Arabíu í istanbul í Tyrklandi af sádi-arabískum útsendurum. Yfirvöld í sverja öll slík tengsl af sér og segjast ekki hafa vitneskju um afdrif blaðamannsins.
Alls hafa 11 manns verið sett á bak við lás á slá í tengslum við morðið á Khashoggi. Þar af hefur verið farið fram á dauðarefsingu yfir fimm þeirra. Réttað hefur verið yfir þeim fyrir luktum dyrum.
Agnes Callamard, sendifulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði málatilbúnaðinn allan ekki uppfylla alþjóðleg skilyrði. Hún segir sönnunargögnin þess eðlis að þau krefjast sjálfstæðrar og alþjóðlegrar rannsóknar á morðinu.
Khashoggi skrifaði greinar í Washington Post. Í þeim gagnrýndi hann sádiarabísk stjórnvöld. Í október var hann myrtur og lík hans sundurlimað á ræðismannaskrifstofu Sádi-Arabíu í Istanbúl í Tyrklandi. Fram hefur komið að fimmtán útsendarar stjórnvalda í Sádi-Arabíu hafi átt hlut að máli. Lík hans hefur enn ekki fundist.
Callamand biðlar til aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres að hefja rannsókn. Einnig eigi alríkislögreglan að rannsaka málið en Khashoggi var búsettur í Bandaríkjunum. Einnig hefur mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna skorað á stjórnvöld í Riyadh í Sádi-Arabíu að hafin verði óháða rannsókn á morði Khashoggi en þetta var borið upp á þingi í mars að frumkvæði Íslendinga.