Hitametin á meginlandi Evrópu hafa verið að falla eitt af öðru í gær og síðustu daga sem hitinn náði víða hátt í 40 gráður. Nú er því spáð að hitinn verði allt að 45 gráður á Spáni og í Frakklandi síðar í dag og á morgun.
Hitamet féllu eitt af öðru í gær, meðal annars í Þýskalandi, Póllandi og Tékklandi og útlit er fyrir að þau haldi áfram að falla að minnsta kosti næstu þrjá daga segja veðurfræðingar. Orsökin er heitt loft frá Norður-Afríku.
Reiknað er með því að hiti fari yfir 40 gráður á ellefu stöðum á Spáni og talið er að hitinn nái allt að 45 gráðum sumstaðar. Yfirvöld á Spáni segja „verulega hættu“ á gróðureldum.
Á Ítalíu er gert ráð fyrir að hitametin verði sömuleiðis slegin, sérstaklega um mitt og norðanvert landið, til dæmis í Rómarborg.
Frönsk yfirvöld hafa varað íbúa við og hafa gripið til varúðarráðstafana vegna hitabylgjunnar. Appelsínugul viðvörun er í gildi um nánast allt Frakkland. Gosbrunnar hafa verið settir upp sem og „köld svæði“. Þá er sérstakt átak í gangi til að aðstoða heimilislausa. Um 15 þúsund manns létust vegna hitabylgju í Frakklandi árið 2003.