Nýnasisti á ekki kost á reynslulausn

Bíllinn sem Fields ók inn í mannfjöldann.
Bíllinn sem Fields ók inn í mannfjöldann. AFP

Nýnas­ist­inn James Alex Fields Jr. hlaut ann­an lífstíðardóm fyr­ir að aka bíl sín­um inn í hóp mót­mæl­enda í Char­lottesville í Banda­ríkj­un­um árið 2017 þar sem ein kona lést. Hann hafði þegar hlotið einn lífstíðardóm auk 419 ára til viðbót­ar fyr­ir alrík­is­dóm­stól.

Þessi dóm­ur­inn féll fyr­ir dóm­stól­um í Virg­in­íu-ríki 28. júní síðastliðinn og hann á ekki kost á að óska eft­ir reynslu­lausn. Hann hef­ur því hlotið tvo lífstíðardóma auk 419 ára fang­elsis­vist­ar. 

Fields ók bíl sín­um á hóp mót­mæl­enda 12. ág­úst 2017 í Virg­in­íu með þeim af­leiðing­um að 32 ára kona lést og 29 manns særðust. Kon­an var stödd í borg­inni til að mót­mæla sam­komu kynþátta­hat­ar­anna. 

James Alex Fields Jr. hlaut lífstíðarfangelsi.
James Alex Fields Jr. hlaut lífstíðarfang­elsi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Erlent »

Fleira áhugavert