Mexíkóski eiturlyfjaforinginn Joaquin Guzman sem oftast er kallaður „El Chapo“ var dæmdur til lífstíðarfangelsisvistar fyrir dómstólum í New York í Bandaríkjunum í dag. Hann var meðal annars sakfelldur fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti.
„El Chapo“ eða „Sá stutti“ var foringi Sinaloa-glæpasamtakanna sem eru ein þau valdamestu í heimi. „El Chapo“ sem er 62 ára var sakfelldur í febrúar á þessu ári fyrir alríkisdómstól í New York fyrir að smygla 155 tonnum af kókaíni og öðrum eiturlyfjum til Bandaríkjanna á 25 ára tímabili.
Lögmaður hans mótmælti dómnum og sagði að honum yrði áfrýjað.
Guzman var framseldur til Bandaríkjanna fyrir um tveimur. Áður hafði hann náð að flýja nokkrum sinnum úr fangelsi. Í eitt skipti gerði hann það með því að skríða í gegnum göng.