Lögregluyfirvöld í Kanada og á Ítalíu handtóku 21 einstakling sem talinn er tilheyra ítölsku ’Ndrangheta-mafíunni í umfangsmiklum aðgerðum. Húsleit var gerð á 48 kaffihúsum, fyrirtækjum og íbúðarhúsum og hald lagt á eignir að andvirði 35 milljóna Kanadadollara, m.a. fimm Ferrari-bíla.
Guardian segir níu hafa verið handtekna í Kanada og eru þeir sakaðir um peningaþvætti og fyrir að halda úti ólöglegri veðmálastarfsemi á Toronto-svæðinu, auk þess að vera liðsmenn glæpasamtaka.
Kanadíska lögreglan leitar þó enn eins manns til viðbótar sem talinn er tengjast veðmálastarfseminni og fíkniefnasölu.
12 voru handteknir í aðgerðunum á Ítalíu og er tveggja til viðbótar enn leitað, m.a. vegna ólöglegrar vopnaeignar.
„'Ndrangheta eru mjög hættuleg glæpasamtök,“ sagði ítalski rannsóknarlögreglumaðurinn Fausto Lamparelli, á fjölmiðlafundi með kanadísku lögreglunni. „Glæpasamtök virða engin landamæri.“
Meðal hinna handteknu var Angelo Figliomeni, en hann hefur verið eftirlýstur á Ítalíu í tæpan áratug og á hann 20 ára dóm yfir höfði sér. Þar sem hann er kanadískur ríkisborgari og tengsl við mafíuna flokkast ekki sem glæpur þar í landi höfðu ítölsk yfirvöld ekki geta fengið hann framseldan.
Í Kanada sá hann hins vegar um peningaþvætti að sögn lögreglumannsins Carl Mattinen, sem fór fyrir rannsókninni þar í landi. Peningaþvættið fór fram í gegnum lögleg spilavíti í Kanada, en Mattinen sagði samtök Figliomeni hafa náð að þvo yfir 70 milljónir Kanadadollara á nokkurra ára tímabili.
Hópur Figliomenis hélt einnig úti ólöglegum spilavítum, sem einnig var lagt hald á. Þá lagði lögregla hald á 27 heimili og 23 lúxusbifreiðir, m.a. einn Ferrari-bíl sem metinn er á 880.000 Kanadadollara.
Að sögn lögreglu var bílaleiga einnig hluti af peningaþvætti samtakanna.