Li Peng, fyrrverandi forsætisráðherra Kína er látinn. Kínverska ríkisfréttastofan Xinhua greinir frá því að Li hafi látist í gærkvöldi af völdum ótilgreindra veikinda. Áður hafði verið greint frá því að Li væri með krabbamein í blöðruhálskirtli. Hann var 90 ára er hann lést.
Li gegndi ýmsum valdamiklum embættum fyrir kínverska kommúnistaflokkinn á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Hann er þó einna þekktastur fyrir sinn þátt í aðgerðum kínverskra stjórnvalda gegn mótmælunum á Torgi hins himneska friðar árið 1989 þar sem kínverskir hermenn drápu hundruð óbreyttra borgar.
Li fyrirskipaði herlög til að brjóta upp mótmælin. Þó að ákvörðunin um að senda herinn á svæðið væri sameiginleg ákvörðun kínversku stjórnarinnar var Li víða talinn bera ábyrgð á blóðbaðinu. Hann varði síðar þær gjörðir sínar sem „nauðsynlegar“.
Atburðirnir á Togi hins himneska friðar fylgdu honum út stjórnmálaferilinn og kom víða til fjölmennra mótmæla er hann var á ferð erlendis.Til að mynda í París árið 1996 þar sem 2.000 manns þyrptust út á göturnar til að mótmæla því að þáverandi forseti Frakklands Jacques Chirac biði hann velkominn.
Li gegndi engu að síður valdamiklum stöðum innan kínverska kommúnistaflokksins í 15 ár eftir atburðina á Torgi hins himneska friðar og stærsta hluta tíunda áratugarins var hann talinn annar valdamesti maður Kína, á eftir forsetanum Jiang Zemin.
Hann gegndi starfi forsætisráðherra í 11 ár, eða til 1998 og var þingforseti til 2003.