Lögregluyfirvöld í Moskvu segja yfir 1.000 manns hafa verið handtekin í mótmælum dagsins. Fjöldi fólks kom saman í borginni í dag til þess að krefjast frjálsra kosninga.
Þúsundir höfðu boðað þátttöku sína í mótmælunum eftir að stjórnvöld neituðu stjórnarandstæðingum og óflokksbundnum frambjóðendum að gefa kost á sér. BBC segir rússnesk yfirvöld hafa lýst um 30 frambjóðendur óhæfa þar sem þeir hafi ekki safnað nóg af gildum undirskriftum fyrir framboð sitt.
Nokkrir þeirra sem ætluðu að gefa kost á sér í kosningunum sem haldnar verða 8. september voru hnepptir í varðhald fyrir daginn í dag.
Í allt „voru 1.074 manns handteknir vegna ýmissa brota á meðan á ólöglegum mótmælum stóð í miðbæ höfuðborgarinnar,“ höfðu rússneskir fjölmiðlar eftir lögreglu.
Stjórnvöld segja mótmælin vera ólögmæt og var mikill viðbúnaður lögregluyfirvalda í borginni.
Sergei Sobyanin, borgarstjóri Moskvu sagði mótmælin vera „öryggisógn“ og hét því að viðhalda almannafriði.
BBC segir mikla reiði ríkja meðal stuðningsmanna stjórnarandstöðunnar við því hvernig borginni er stjórnað sem og í garð flokksins, Sameinað Rússland, sem þar fer með völd.
Alexei Navalny, einn harðasti andstæðingur Vladimír Pútíns Rússlandsforseta, var handtekinn á miðvikudag og úrskurður í 30 vikna gæsluvarðhald fyrir að hvetja til mótmælanna í dag.