Réttarhöld yfir bandaríska milljarðamæringnum Jeffrey Epstein hefjast ekki fyrr en í júní á næsta ári. Þetta kom fram í máli dómara en Epstein kom í fyrsta skipti í dómsal í dag síðan hann fannst meðvitundarlítill í fangaklefa í síðustu viku.
Samkvæmt frétt AFP bar Epstein engin merki þess að hann hefði reynt að skaða sjálfan sig fyrir nokkrum dögum.
Epstein, sem er 66 ára, hefur verið ákærður fyrir að eiga samræði við stúlkur undir lögaldri, fyrir mansal og skipulagningu mansals.
Saksóknari sagði að það væri allra hagur ef réttað yrði yfir Epstein eins fljótt og auðið er.
Lögmaður Epstein sagði hins vegar að það tæki hann 13 mánuði að undirbúa málið og hann vildi því að réttarhöld hæfust í september á næsta ári.
Dómari sagði að réttarhöldin myndu líklega taka á bilinu fjórar til sex vikur. Miðað er við að þau hefjist 8. júní á næsta ári en það gæti þó breyst.
Verði Epstein fundinn sekur á hann yfir höfði sér allt að 45 ára fangelsi.