Yfir fimm milljónir íbúa í Simbabve, um þriðjungur þjóðarinnar, þarf á matvælaaðstoð að halda. Stór hluti þessa hóps er á barmi hungursneyðar, samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum.
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) hefur lagt fram rúmlega 330 milljóna dollara fjárhagsaðstoð, eða sem nemur rúmlega 40 milljörðum króna, sem nýtt verður til að bregðast við þurrki, hvirfilbyljum og fjármálakreppu í landinu.
David Beasley, framkvæmdastjóri WFP, segir að neyðarástand sé yfirvofandi og að um 2,5 milljónir íbúa séu á barmi hungursneyðar. „Um er að ræða fólk sem mun búa við hungursneyð ef við verðum ekki til staðar og hjálpum þeim. Við erum að glíma við þurrk sem við höfum ekki upplifað áður,“ segir Beasley í samtali við BBC.
Samkvæmt nýlegri skýrslu Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) bjuggu rúmlega 820 milljónir jarðarbúa við hungur í fyrra og hefur fjöldinn lítið breyst frá árinu 2015, er hann mældist tæp 11%. Áratugina á undan hafði dregið með stöðugum hætti úr hungri í heiminum. Frá 2015 hefur hins vegar þeim sem búa við hungur tekið að fjölga hægt og sígandi á nýjan leik, sem gerir markmið þess risavaxna verkefnis að binda endi á hungur í heiminum árið 2030 enn fjarlægara.
Uppskera í Simbabve hefur verið slæm vegna mikilla þurrka og hefur matvælaverð hækkað. Vatnsborð hefur einnig minnkað sem hefur áhrif á aðal raforkuver landsins og rafmagnsleysi verður æ algengara.
Fellibylurinn Idai sem gekk yfir Simbabve og stóran hluta sunnanverðrar Afríku í mars hefur einnig haft gríðarleg áhrif. Óveðrið olli gríðarlegri eyðileggingu og breytti lífi milljóna manna til hins verra.
Mthuli Ncube, fjármálaráðherra Simbabve, tilkynnti í síðustu viku að yfirvöld hafi séð 757.000 heimilum fyrir korni frá áramótum. Í gær lýsti forseti landsins, Emmerson Mnangagwa, yfir neyðarástandi vegna þurrka.
Sameinuðu þjóðirnar hafa nú þegar samþykkt neyðaraðstoð sem nemur 294 milljónum dollurum en stofnunin segir nú ljóst að þörf sé á auknu fjármagni til að bregðast við ástandinu.