Fjárfestirinn og barnaníðingurinn Jeffrey Epstein, sem fannst látinn í fangaklefa sínum á Manhattan í gærmorgun, átti að vera undir eftirliti fangelsisvarða á hálftíma fresti. Því verklagi var ekki fylgt nóttina áður en hann fannst.
Þetta hefur dagblaðið New York Times eftir ónafngreindum heimildarmanni sínum innan raða löggæsluyfirvalda.
Dagblaðið greinir enn fremur frá því að fangelsið hafi fært þann sem deildi klefa með Epstein úr klefanum, og þar með leyft Epstein að vera einn um klefann aðeins tveimur vikum eftir að sjálfsvígsvakt yfir honum var hætt.
Ákvörðunin um þetta brýtur í bága við hefðbundið verklag fangelsisins, segja tveir embættismenn í samtali við New York Times.
Þessar uppljóstranir hafa vakið enn fleiri spurningar um það sem virðist vera sjálfsvíg níðingsins og munu rannsóknir dómsmálaráðuneytisins annars vegar og alríkislögreglunnar hins vegar líklega beinast að þessu misræmi í verklagi.
Fangelsismálaskrifstofa ráðuneytisins hefur þegar verið harðlega gagnrýnd fyrir að hafa ekki sérstaka vakt á Epstein eftir að hann fannst í klefa sínum 23. júlí með áverka sem bentu til sjálfsvígstilraunar.
Heimildarmaður New York Times segir að þegar tekin hafi verið ákvörðun um að hætta sjálfsvígsvakt yfir Epstein hafi fangelsið upplýst dómsmálaráðuneytið um að hann myndi hafa klefafélaga og að vörður myndi líta inn í klefann á hálftíma fresti.
Það var hins vegar ekki gert, upplýsir heimildarmaðurinn.
Samsæriskenningar ýmiss konar hafa sprottið upp á yfirborðið eftir andlát Epsteins og hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti ekki látið sitt eftir liggja.
Nokkrum klukkustundum eftir að Epstein fannst látinn í klefa sínum endurtísti Trump Bandaríkjaforseti færslu frá grínistanum Terrence Williams, sem tengdi Clinton-hjónin við dauða Epstein. Þar kemur fram að Epstein „hafði upplýsingar um Bill Clinton og núna er hann dáinn,“ skrifaði Williams, sem er stuðningsmaður Trump.
Í tveggja mínútna myndskeiði sagði Williams að „af einhverjum skrítnum ástæðum deyr fólk sem hefur uppýsingar um Clinton-hjónin“.