Konan sem fannst látin í húsi eftir skotárás í mosku skammt frá Ósló í gær er stjúpsystir byssumannsins.
Norska lögreglan greindi frá þessu í dag.
„Lögreglan staðfestir að sautján ára stjúpsystir mannsins sem er grunaður fannst myrt í gær,“ sagði lögreglan í yfirlýsingu.
Áður hafði lögreglan greint frá því að málið væri rannsakað sem hryðjuverk.
Maðurinn sem er í varðhaldi er grunaður um að hafa skotið sér leið gegnum glugga moskunnar og skotið svo á allt sem fyrir varð með mörgum skotvopnum. Hálfáttræður maður, sem hafði nýlokið bænastund í moskunni, réðst á árásarmanninn og hafði hann undir. Sá hálfáttræði hlaut minni háttar meiðsli.
Síðar fannst konan látin á heimili byssumannins.
Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, sagði að ódæðið væri „bein árás á norska múslima“ auk þess að vera „árás gegn trúfrelsi“. „Í dag stöndum við saman með norskum múslimum og fordæmum árásina,“ sagði hún á Facebook-síðu sinni.
Hún var á meðal gesta á bænastund sem var haldin í mosku í Ósló í tilefni af fórnarhátíð múslima, Eid al-Adha.
Samkvæmt opinberum tölum búa um 200 þúsund múslimar í Noregi, eða tæplega fjögur prósent af íbúafjölda í landinu.