Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist hafa dálæti á því að kalla konur andstyggilegar (e. nasty). Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, er nýjasta viðbótin í þennan ört stækkandi hóp kvenna, eftir að hún brást „andstyggilega“ við, að mati Trump, þegar hún neitaði að ræða við hann um mögulega sölu á Grænlandi.
En hvað gengur forsetanum til?
Því verður ekki auðsvarað en eitt er víst: Andstyggileg er orð sem hann notar oft og þá sérstaklega um konur. Simone Scheuer-Hansen, blaðamaður Politiken, hefur gert áhugaverða samantekt á andstyggilegu konunum hans Trump“.
Meghan Markle, eiginkona Harry Bretaprins, var ekki á gestalistanum hjá hennar hátign þegar forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, kom í opinbera heimsókn til Bretlands fyrr í sumar. Í aðdraganda forsetakosninganna 2016 sagði Meghan Trump fullan kvenhaturs. Trump var spurður út í ummælin í viðtali í The Sun í aðdraganda heimsóknarinnar. „Ég vissi ekki að hún væri andstyggileg. Ég vona að hún hafi það sem best.“
Trump þvertók síðar fyrir að hafa kallað Meghan andstyggilega og sagði að um falsfréttir væri að ræða, þrátt fyrir að ummælin heyrist á upptöku frá blaðamanni The Sun.
Átök einkenndu kosningabaráttuna fyrir bandarísku forsetakosningarnar 2016 og fékk Hillary Clinton, forsetaframbjóðandi demókrata, oftar en ekki að finna fyrir því.
Í þriðju kappræðunum í aðdraganda kosninganna kallaði Trump Clinton andstyggilega í kjölfar yfirlýsinga hennar um að hún myndi hækka skatta á þá launahæstu til að leggja meira fé í félagslegan stuðning. „Svo andstyggileg kona,“ skaut Trump þá inn í. Skömmu áður hafði Trump fullyrt að enginn bæri jafn mikla virðingu fyrir konum og hann sjálfur.
Trump hefur í tvígang kallað öldungadeildarþingmanninn Kamala Harris, sem sækist eftir tilnefningu Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á næsta ári, andstyggilega. Nú síðast þegar William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, kom fyrir þingnefnd öldungardeildarþingsins vegna rannsóknar Roberts Mueller. Trump sagði að Harris hefði verið virkilega andstyggileg í spurningu sinni til Barr.
„Andstyggileg, hefnigjörn og hræðileg manneskja.“ Þannig lýsti Trump Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, þegar hún brást við ummælum forsetans þar sem hann sagði fjórum þingmönnum Demókrataflokksins að „fara heim.“
Bandaríska öldungadeildarþingmaðurinn Elizabeth Warren, eða „Pocahontas“ eins og Trump hefur kallað hana, er heldur ekki í uppáhaldi hjá forsetanum. Hún var meðal þeirra fyrstu sem forsetinn kallaði andstyggilega. Það gerði hann á Twitter í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Warren sækist eftir útnefningu Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar á næsta ári og á eflaust eftir að kljást meira við Trump.