Margar þekktar manneskjur hafa gagnrýnt skógareldana í Amazon harðlega, þar á meðal Madonna, Cristiano Ronaldo, Leonardo DiCaprio og Emmanuel Macron. Þær hafa hins vegar ekki gert sér grein fyrir því að með færslum sínum á samfélagsmiðlum hafa þær birt myndir af brennandi eldum sem eru gamlar eða myndir sem eru teknar annars staðar í heiminum.
Samkvæmt opinberum gögnum voru skráðir tæplega 73 þúsund skógareldar í Brasilíu á fyrstu átta mánuðum ársins og hafa ekki verið jafn margir síðan árið 2013. Flestir þeirra eru í Amazon-regnskóginum.
Líkt og mbl.is greindi frá í morgun skrifaði forseti Frakklands, Emmanuel Macron, færslu á Twitter um að heimili okkar brenni. En myndin sem Macron notar með færslunni er ekki af skógareldum í ár. Fréttamenn AFP fóru á stúfana og fundu myndina. Hún er tekin af bandaríska ljósmyndaranum Loren McIntyre, sem er þekktur fyrir myndir sínar fyrir National Geographic. Þrátt fyrir að leitarvélar gefi ekki upp hvenær myndin er nákvæmlega tekin breytir það ekki því að McIntyre lést árið 2003 sem þýðir að myndin er að minnsta kosti 16 ára gömul.
Forseti Chile, Sebastian Pinera, birti á Twitter færslu með mynd sem tekin er af ljósmyndara Reuters, Nacho Doce, árið 2013.
Leikarinn Leonardo DiCaprio birti tvær myndir. Sú fyrri er sú sama og Macron birti en hin var tekin í borginni Puerto Maldonado í Perú árið 2016. Engir skógareldar loga í Perú um þessar mundir en yfirvöld þar fylgjast grannt með gangi mála enda loga eldar víða í nágrannaríkinu Bólivíu líkt og meðfylgjandi myndskeið AFP-fréttastofunnar sýnir.
Leikarinn og rapparinn Jaden Smith, sonur Will Smith, birti dramatíska mynd á Instagram sem sýnir mikið skóglendi logandi en myndin, sem hefur fengið yfir 1,5 milljónir like-a, er frá árinu 1989.
Argentínska leik- og söngkonan Martina Stoessel birti einnig gamla mynd á Twitter þar sem hún skrifaði „hveru sorglegt er að sjá þetta...“. Myndin er tekin af ljósmyndara Getty Images, Mario Toma, árið 2014.
Formúluökumaðurinn Lewis Hamilton og knattspyrnumaðurinn Dani Alves hafa einnig birt myndir sem McIntyre tók á sínum tíma og tennisleikarinn Novak Djokovic birti einnig myndina frá árinu 1989 sem Smith var með á Instagram.
Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo birti varnaðarorð varðandi Amazon á Instagram en hann er með 180 milljónir fylgjenda. Þar greindi hann réttilega frá því að 20% súrefnis í heiminum verður til í Amazon en myndin sem fylgdi var tekin 29. mars árið 2013 af Lauro Alves í Rio Grande do Sul en ekki Amazon. Luis Suarez birti einnig gamla mynd en sú er frá árinu 2015 og er tekin af blaðamanninum Nacho Doce.
Söngvarinn Ricky Martin og Camila Cabello birtu einnig mynd McIntyre sem Macron, DiCaprio og Alves birtu á Twitter.
Madonna birti sömu mynd frá árinu 1989 og Smith og Djokovic á Instagram og skrifaði: Bolsonaro forseti gerðu það breyttu um stefnu og komdu ekki aðeins þínu eigin landi til hjálpar heldur allri jörðinni.