Fyrir tveimur árum flúði Rashida Khatun Rakhine-hérað í Búrma ásamt fjölskyldu sinni og þúsundum rohingja. Eftir nokkurra klukkutíma gang, siglingu í aftakaveðri þangað til fjölskyldan komst í skjól í Bangladess þar sem Ahmad Shah fæddist í grenjandi rigningu.
Rashida Khatun segir að þegar hún, eiginmaður hennar og börn þeirra þrjú höfðu gengið klukkutímum saman á flótta undan hermönnum í Búrma hafi bátsferð í úfnum sjó til Bangladess tekið við. Hún var full örvæntingar enda komið að fæðingu barnsins.
Skjólið var ekki merkilegt aðeins dúkur sem skýldi þeim fyrir mestu rigningunni í vegkanti. Nokkrum tímum síðan fæddist Shah með aðstoð nokkurra rohingja-kvenna, sem einnig voru á flótta.
„Ég var svo þreytt. En ég vildi tryggja ófæddu barni mínu öryggi,“ segir móðirin í viðtali við AFP. „Ég hélt að hann myndi ekki lifa þetta af þar sem við vorum gegndrepa í rigningunni.“
Shah varð tveggja ára í dag en tvö ár eru liðin frá því 740 þúsund rohingjar urðu landflótta þar sem þeir flúðu undan ofbeldisverkum hermanna í vesturhluta Búrma. Fólkið býr nú í yfirfullum flóttamannabúðum í Bangladess.
Fæðing Shah og flótti fjölskyldunnar er áminning um lífskjör ríkisfangslausra múslíma sem þurftu að flýja heimaland sitt. Um 200 þúsund rohingjar tóku þátt í göngunni í stærstu flóttamannabúðum heims þar sem þeir minntust dags sem þeir kenna við þjóðarmorð.
Faðir Shah, Mohammad Selim, segir son sinn vera kraftaverkabarn. „Guð bjargaði barni mínu þessa nótt.“