Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, segist vera tilbúinn til að ræða um fjárstuðning frá G7-ríkjunum til að berjast gegn skógareldum í Amazon, ef Emannuel Macron, Frakklandsforseti, „dregur móðandi ummæli sín til baka” í hans garð.
„Ef við ætlum að tala við eða taka við einhverju frá Frökkum, þar sem góður hugur liggur að baki, þá verður hann [Macron] að draga þessi orð sín til baka. Í framhaldinu getum við rætt málin,” sagði Bolsonaro við blaðamenn.
BBC segir brasilíska ráðamenn ekki hafa gefið neina skýringu á að hafna fjárstuðningnum en Bolsonaro hefur sakað Frakka um að koma fram við Brasilíu eins og nýlenduríki. Onyx Lorenzoni, starfsmannastjóri Bolsonaro, tjáði sig við Globo-vefsíðuna um fjárgjöfina. „Takk, en kannski þessum fjármunum verði betur varið til að græða upp skóga Evrópu,“ sagði hann.
Macron gagnrýndi brasilíska forsetann harkalega í gær vegna ummæla Bolsonaro í garð eiginkonu hans, Brigitte Macron.