Bandaríska dómsmálaráðuneytið gerir athugasemdir við að James Comey, fyrrverandi forstjóri bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, hafi haldið eftir minnisblöðum sem hann skrásetti eftir fundi hans með Donald Trump Bandaríkjaforseta. Með því braut hann reglur stofnunarinnar, sem og þegar hann lak efni minnisblaðanna til fjölmiðla.
Dómsmálaráðuneytið segir að Comey hafi með hegðun sinni sett hættulegt fordæmi fyrir samstarfsmenn sína hjá alríkislögreglunni.
Niðurstaða rannsóknar dómsmálaráðuneytisins er samt sem áður sú að Comey hafi ekki lekið trúnaðargögnum. Málinu hefur verið vísað til saksóknara sem mun ákvarða hvort Comey verði sóttur til saka.
Trump rak Comey úr starfi sínu hjá FBI í maí 2017, sem varð til þess Robert Mueller var gerður að sérstökum saksóknara FBI á afskiptum rússneskra ráðamanna af bandarísku forsetakosningunum 2016 og tengslum þeirra við starfsmenn framboðs Trumps.
Mueller segir í rannsóknarskýrslu sinni sem var opinberuð í apríl að hann hafi ekki getað ályktað að Trump sé saklaus af ásökunum um að hafa hindrað framgang réttvísinnar.
Fregnir þess efnis að Comey hefði haldið eftir minnisblöðum um samskipti sín við Trump bárust í apríl 2018. Þar á meðal voru að minnsti kosti tvö minnisblöð sem Comey lét vin sinn og lögmann, Dan Richam hafa og innihéldu þau upplýsingar sem embættismenn mátu síðar sem leynilegar. Þá á hann að hafa veitt Richam leyfi til að deila efni minnisblaðanna með blaðamanni New York Times.
Reglurnar sem Comey braut, að mati dómsmálaráðuneytisins, heyra undir að starfsmönnum alríkislögreglunnar er ekki heimilt að taka með sér gögn án heimildar stofnunarinnar. Comey tók að minnsta kosti fjögur minnisblöð sem hann geymdi í öryggisskáp á heimili sínu. Eftir að hann var rekinn lét hann ekki vita að hann væri með minnisblöðin í vörslu sinni.
Comey tjáir sig um niðurstöðu rannsóknar dómsmálaráðuneytisins og segir hana staðfesta sakleysi sitt. „Ég þarf ekki opinbera afsökunarbeiðni en stutt skilaboð sem segja „fyrirgefðu að við lugum upp á þig“ væri ágætt,“ segir Comey meðal annars á Twitter.
Fram kemur í fréttatilkynningu frá Hvíta húsinu að Comey sé lygari og það sé löngu staðfest að hann hafi lekið gögnum. Þá segir Trump að Comey ætti að skammast sín.