Fimm látnir eftir skotárás í Texas

AFP

Fimm eru látnir og að minnsta kosti 16 særðir eftir að karlmaður hóf skothríð í borgunum Odessa og Midland í Texas í Bandaríkjunum um miðjan dag að staðartíma. Lögregla skaut árásarmanninn til bana fyrir utan kvikmyndahús í Odessu.

Lögregla greindi frá því að ekki hefði verið um tvo árásarmenn að ræða, eins og talið var í fyrstu.

Árásarmaðurinn hafi notað tvö ökutæki en hann keyrði um borgirnar og virðist hafa valið fórnarlömb sín af handahófi.

Þrír lögregluþjónar urðu fyrir skoti en ekki er talið að þeir séu alvarlega særðir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert