Sænski aðgerðasinninn Greta Thunberg mótmælti aðgerðaleysi stjórnvalda á heimsvísu vegna loftslagsbreytinga ásamt fjölda bandarískra ungmenna við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York í gær.
Thunberg kom til New York í vikunni en hún mun ávarpa ráðstefnugesti loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 23. september. Thunberg ferðaðist með seglskútu yfir hafið þar sem hún flýgur ekki sökum loftmengunar.
Thunberg hóf að mótmæla fyrir rúmu ári, fyrst um sinn ein, en hún hefur veitt öðrum ungmennum drifkraft sem hafa safnast saman á föstudögum víða um heim og mótmælt aðgerðaleysi stjórnvalda vegna loftslagsbreytinga. Í gær fóru 54. mótmælin fram
School strike week 54. In New York. #FridaysForFuture #schoolstrike4climate #ClimateStrike pic.twitter.com/Tx4NM4dqDZ
— Greta Thunberg (@GretaThunberg) August 30, 2019
Hundruð bandarískra ungmenna voru samankomin við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna vegna mótmælanna. „Þegar við vissum að Greta yrði hér gátum við ekki látið mótmælin framhjá okkur fara. Hún veitir okkur innblástur,“ segir Atara Saunders, 17 ára, sem er búsett í Fíladelfíu en kom til New York vegna Thunberg.
Að mótmælunum loknum átti Thunberg fund með forseta allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, Mariu Fernöndu Espinosa. Talsmaður Espinosa segir að á fundinum hafi Thunberg farið fram á að gripið verði til aðgerða.
Young people in NYC joined @gretathunberg outside UNHQ on Friday, showing solidarity with students around the 🌎 demanding urgent #ClimateAction. Find out how YOU can help tackle the climate crisis: https://t.co/0t01OVDMvC pic.twitter.com/qlEZjLySqw
— United Nations (@UN) August 30, 2019