Þök hafa rifnað af húsum á Bahamaeyjum og töluverð flóðahætta hefur myndast þar sem fellibylurinn Dorian er á leið sinni yfir eyjarnar með gríðarlegum vindhraða. Dorian er fimmta stigs fellibylur og er það hæsta stig sem mælst getur.
„Allir eru öruggir í húsinu en það versta á enn eftir að koma,“ sagði Simone Chandler í samtali við CNN. Chandler býr í Flórída í Bandaríkjunum en móðir hennar býr í Freeport á Bahama og sendi henni myndskeið.
Chandler bætti við að vatnshæðin fyrir utan hús móður hennar væri rosaleg og auk þess væri vatn inni í húsinu. Fjölskyldan hefði öll flúið upp á aðra hæð hússins vegna flóða.
Um 17 þúsund íbúar eru á Albaco-eyjum en hluti þeirra er kominn undir vatn. Þar hafa bílar fokið og þök fokið af húsum.
Freeport currently, yes I live on the beach. No, we didn’t evacuate. #Dorian ⛈#HurricaneDorian2019 pic.twitter.com/i5qFEklkCo
— 🇧🇸Goal Go-Getta🏆 (@GoGettaGoal) September 2, 2019
Lýst hefur verið yfir neyðarástandi í Flórída, Georgíu og Norður- og Suður-Karólínu en þangað er fellibylurinn væntanlegur á næstu dögum.
Ekki hafa borist fregnir af mannfalli en Rauði krossinn óttast að um 13 þúsund heimili á Bahamaeyjum séu mikið skemmd eða ónýt.
Bandaríska fellibyljamiðstöðin NHC sagði að Dorian myndi halda áfram að „berja á Bahamaeyjum“ í dag og fram á kvöld.