Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, heitir því að hann muni innlima hluta af landsvæði Palestínumanna á Vesturbakkanum standi hann uppi sem sigurvegari í kosningum í Ísrael í næstu viku. Saeb Erekat, háttsettur palestínskur samningamaður, segir að það myndi gera friðarvonir að engu.
Netanyahu sagði í dag að nauðsynlegt væri fyrir öryggi og arfleifð Ísraels að innlima stóran hluta Vesturbakkans og Austur-Jerúsalem.
Talsmaður aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna sagði að slík ákvörðun, um að þröngva sínum landamærum á Vesturbakkann, ætti sér ekki heimild í alþjóðalögum.
Kosningarnar 17. september eru aðrar þingkosningarnar í Ísrael á árinu. Netanyahu mistókst að mynda stjórn eftir kosningar í apríl jafnvel þótt að Likud-flokkur hans og samherjar hans í ríkisstjórn hafi náð meirihluta í kosningunum.
Í stað þess að láta öðrum eftir umboðið setti hann fram tillögu um aðrar kosningar, sem var samþykkt á þinginu.