Þrír yfirmenn Tokyo Electric Power (Tepco) sem rak kjarnorkuverið í Fukushima í Japan hafa verið sýknaðir af öllum ákærum vegna kjarnorkuslyssins sem þar varð fyrir átta árum.
Mannskæður jarðskjálfti og öflug fljóðbylgja í mars 2011 leiddu til kjarnorkuslyss í kjarnorkuverinu í Fukushima. Um 18.500 manns létust í hamförunum eða er enn saknað.
Þremenningarnir eru þeir einu sem ákærðir voru í málinu og því liggur ljóst fyrir að enginn verður sakfelldur fyrir glæpsamlegt atferli vegna slyssins, sem er það alvarlegasta sinnar tegundar frá slysinu í Chernobyl árið 1986.
Tsunehisa Katsumata, fyrrverandi stjórnarmaður fyrirtækisins, og varaforstjórarnir Sakae Muto og Ichiro Takekuro, sem eru á sjötugs- og áttræðisaldri, voru ákærðir fyrir glæpsamlega vanrækslu sem leiddi til dauða 44 manns þrátt fyrir að opinberlega hafi engin dauðsföll verið skráð sem bein afleiðing slyssins. Dauðsföllin sem vísað er til í ákærunni ná til þeirra sem létust á sjúkrahúsi í kjölfar kjarnorkuslyssins eftir að hafa verið fluttir með hraði í kjölfar þess að kjarnaofnar orkuversins bráðnuðu og geislavirk efni láku út.
Áttu þeir yfir höfði sér fimm ára fangelsi, yrðu þeir fundnir sekir.