„Hættið að myrða okkur“ var meðal fjölmargra slagorða sem sjá mátti á mótmælaspjöldum í borginni Rio de Janeiro í Brasilíu þegar ofbeldi lögreglunnar í garð minnihlutahópa var mótmælt. Morð lögreglunnar á átta ára gamalli stúlku varð til þess að íbúar gengu fylktu liði um götur borgarinnar. BBC greinir frá.
Stúlkan, Ágatha Vitória Sales Félix, var á göngu með móður sinni þegar hún var skotin til bana í bakið. Mæðgurnar voru á ferð í einu fátækasta hverfi borgarinnar á föstudaginn síðasta.
Vitnum og lögreglunni ber ekki saman um hvernig það atvikaðist að lögreglan hleypti af skoti sem hafnaði í baki stúlkunnar. Vitni segja að lögreglan hafi reynt að skjóta mann á bifhjóli sem hafi ekki verið vopnaður. Lögreglan fullyrðir að hún hafi verið að verjast árás þegar skotið fór inn í bíl þar sem stúlkan var farþegi.
Frá því í janúar fram í ágúst hafa 1.249 manns látist í sambærilegum árásum lögreglu. Ágatha var fimmta barnið sem deyr í slíkum átökum.
Frá því Wilson Witzel tók við embætti ríkisstjóra í janúar hafa sífellt fleiri einstaklingar látist í fátækustu hverfum borgarinnar. Hann er sagður standa á bak við harkalegar aðgerðir í garð þessara hópa.