Sérfræðingar Boeing og bandaríska loftferðaeftirlitsins mátu viðbrögð flugmanna rangt þegar þeir lentu í erfiðleikum við að stjórna 737 MAX-þotunum. Þetta er niðurstaða samgönguöryggisnefndar Bandaríkjanna (NTSB). Í nýútkominni skýrslu nefndarinnar er lagt til að hönnun þotanna verði endurskoðuð sem og þjálfun flugmanna þotanna.
Rúmt hálft ár er síðan allar 737 MAX þotur Boeing voru kyrrsettar eftir tvö gríðarlega mannskæð flugslys í Indónesíu og Eþíópíu með nokkurra mánaða millibili þar sem 346 manns létu lífið.
„Við sjáum í þessum tveimur slysum að áhöfnin brást ekki við eins og Boeing og bandaríska loftferðaeftirlitið höfðu gert ráð fyrir,“ sagði Robert Sumvalt, formaður NTSB, þegar skýrslan var kynnt í dag.
Nefndin leggur til að farið verði alfarið yfir hönnun þotanna og að þjálfun flugmanna verði byggð á þeim viðbrögðum sem flugmenn þotanna tveggja sýndu í þeim aðstæður sem þeir lentu í sem urðu til þess að þoturnar brotlentu.
Talsmaður loftferðaeftirlitsins segir að ítarlega verði farið yfir niðurstöður skýrslunnar sem og önnur gögn sem varpa ljósi á rannsókn slysanna. Talsmaður Boeing segir að ekki sé gert ráð fyrir að þotunum verði flogið að nýju fyrr en eftir áramót.