Spænski óperusöngvarinn Placido Domingo, sem verið hefur stjórnandi Los Angeles-óperunnar frá árinu 2003, sagði starfi sínu lausu í gær. Domingo, sem sakaður hefur verið um kynferðislega áreitni af fjölda kvenna, sagði í yfirlýsingu að ásakanirnar kæmu í veg fyrir að hann gæti sinnt starfi sínu sem stjórnandi óperunnar sem hann tók þátt í að stofna.
Rúm vika er síðan greint var frá því að Domingo myndi ekki koma aftur fram í Metropolitan-óperunni í New York, en sú ákvörðun var tekin skömmu áður en hann átti að stíga þar á svið. Domingo hefur ekki komið fram í Bandaríkjunum síðan ásakanirnar gegn honum komu fram í byrjun ágústmánaðar og höfðu Fíladelfíuorkestran og San Fransiskó-óperan þegar hætt við að halda sýningar með Domingo innanborðs.
Í frétt New York Times frá því í gærkvöldi segir að tilkynning um brotthvarf hans frá Los Angeles-óperunni bendi til þess að tenórinn, sem er 78 ára gamall, gæti verið að hverfa alfarið af sjónarsviðinu í bandaríska óperuheiminum. Domingo hefur þó enn nóg að gera í evrópskum óperuhúsum.
Í yfirlýsingu Domingo segir að honum þyki afar vænt um Los Angeles-óperuna og að hann líti á það sem eitt af sínum mikilvægustu lífsverkum að hafa tekið þátt í að koma henni á laggirnar. Ásakanirnar gegn honum og andrúmsloft sem hefði skapast í kjölfar þeirra gerði honum þó ókleift að þjóna fyrirtækinu lengur.
„Á meðan ég held áfram að hreinsa nafn mitt hef ég ákveðið að það sé best fyrir Los Angeles-óperuna að ég hætti sem aðalframkvæmdastjóri og segi mig frá skipulögðum sýningum,“ segir í yfirlýsingu tenórsins.
Los Angeles-óperan hefur verið að rannsaka ásakanirnar á hendur Domingo og sagði forstjóri hennar, Cristopher Koelsh, að þeirri rannsókn yrði haldið áfram þar innanhúss, þrátt fyrir að Domingo væri nú hættur störfum.