Fyrirtækið MGM Resorts hefur komist að samkomulagi við fórnarlömb skotárásarinnar sem framkvæmd var frá hóteli þeirra í Las Vegas í október 2017 um bótagreiðslu upp á allt að 800 milljónir Bandaríkjadala, eða jafnvirði tæðlega 100 milljarða króna.
Árásarmaðurinn kom sér fyrir á hótelherbergi á 32. hæð hótelsins Mandala Bay, sem er í eigu MGM Resorts, þennan örlagaríka dag og hóf skotárás á gesti tónlistarhátíðar sem fram fór á svæði sem einnig er í eigu MGM Resorts skammt frá.
Á tíu mínútum lágu 58 í valnum og hundruð slösuðust áður en árásarmaðurinn tók eigið líf.
Skotárásin var sú mannskæðasta sem framkvæmd hefur verið af einni manneskju í sögu Bandaríkjanna og varð til þess að skotvopnalögum var breytt og búnaður til þess að hálfsjálfvirkir hríðskotarifflar virki eins og sjálfvirkir var bannaður.
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2018/05/03/innras_logreglu_i_svitu_paddocks/
„Þó að ekkert geti fært okkur ástvini okkar aftur eða afturkallað þann hrylling sem svo margir gengu í gegnum þennan dag mun samkomulagið veita þúsundum fórnarlamba og fjölskyldum þeirra sanngjarnar bætur,“ segir lögmaður fórnarlambanna.