„Ég gæti valdið ykkur vonbrigðum, en ég er ekki jafn hrifinn og allir hinir af ræðu Gretu Thunberg,“ játaði Vladimír Pútín, forseti Rússlands, í pallborðsumræðum á orkumálaráðstefnu sem fram fer um þessar mundir í Moskvu.
Pútín segir ungt fólk í dag aðeins veita vandamálum nútímans athygli, líkt og loftslagsvánni. „Það er hið besta mál. Við þurfum að styðja þau. En þegar einhver notar börn og unglinga í eigin þágu er ekki annað hægt en að fordæma það.“
Orðum Pútíns svipar óneitanlega til ummæla Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, í Silfrinu síðastliðinn sunnudag. Þar sagði hann það óviðeigandi að nota barn í pólitískri baráttu á heimsvísu. Minntist hann á Thunberg og sagði hana mæta fyrir Sameinuðu þjóðirnar, „nánast grátandi af skelfingu, sem var örugglega raunveruleg“.
Pútín sagði engan hafa útskýrt fyrir Thunberg hversu flókinn nútímaheimurinn sé og að hann breytist hratt.
Thunberg hélt innblásna ræðu um loftslagsmál á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í New York í síðasta mánuði þar sem hún lýsti með miklum tifinningahita hvernig leiðtogar heims væru að svíkja hennar kynslóð með því að láta hjá líða að grípa til nægra aðgerða gegn loftslagsvánni.
Pútín bætist í hóp þeirra sem hafa gagnrýnt framkomu Thunberg. Hún hefur þegar svarað þeim á Twitter þar sem hún er augljóslega mjög pirruð á því hvernig fólk gagnrýndi hana og sakaði fólk um að „fara yfir öll mörk til að beina athylginni frá loftslagsmálum“ með því sem hún kallar lygar og samsæriskenningar.