Sósíalistaflokkurinn hefur lýst yfir sigri í þingkosningunum sem fóru fram í Portúgal í dag. Fyrstu tölur benda til þess að Sósíalistaflokkurinn, undir forystu Antonio Costa forsætisráðherra landsins, fái rétt tæp 40% atkvæða.
Er það í takt við síðustu kannanir fyrir kosningar en Costa hefur verið forsætisráðherra í Portúgal undanfarin fjögur ár í ríkisstjórn Sósíalistaflokksins og tveggja annarra vinstriflokka, Kommúnistaflokksins og Vinstri blokkarinnar.
Talið er líklegt að Costa leiti til sömu flokka og áður við myndun ríkisstjórnar.
Á þeim fjórum árum sem Costa hefur verið við völd hefur hagvöxtur landsins verið talsvert umfram meðaltal ríkja Evrópusambandsins. Í fyrra var hagvöxturinn 2,4% og 3,5% árið áður og atvinnuleysi hefur sömuleiðis minnkað.