Hvíta húsið mun ekki með nokkrum hætti starfa með þingmönnum fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í ákæruferlinu gegn Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Lögmaður forsetans og Hvíta hússins segir ákæruferlið ólögmætt.
Trump er sakaður um að hafa þrýst á Volodymir Zelenskí, forseta Úkraínu, í símtali í sumar að láta rannsaka bæði Joe Biden, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna og mögulegan keppinaut hans um forsetastólinn á næsta ári, og Hunter, son hans, vegna tengsla þess síðarnefnda við úkraínska gasfyrirtækið Burisma. Trump hefur viðurkennt að hafa nefnt málefni feðganna í símtalinu.
Málið hefur haft afar víðtækar afleiðingar fyrir forsetann, en demókratar í hópi fulltrúardeildarþingmanna á Bandaríkjaþingi rannsaka nú hvort um embættisglöp hafi verið að ræða.
Í átta síðna bréfi Pat Cipollone, yfirlögmanns Hvíta hússins, til Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar þingsins, og þriggja annarra leiðtoga Demókrataflokksins, segir að rannsóknin brjóti gegn stjórnarskrá og sé ósanngjörn. Þar er tekið fram að enginn starfsmaður ríkisstjórnarinnar muni koma fyrir þingnefnd vegna rannsóknarinnar og engin skjöl verði afhent.
„Trump getur ekki leyft ríkisstjórn sinni að taka þátt í þessari flokksbundnu vegferð undir þessum kringumstæðum,“ segir meðal annars í bréfinu. Þá fullyrðir Cipollone að rannsóknin brjóti gegn réttindum Trumps.
Fyrr í dag kom Hvíta húsið í veg fyrir að Gordon Sondland, sendiherra Bandaríkjastjórnar gagnvart Evrópusambandinu, bæri vitni fyrir nefndum fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í tengslum við rannsóknina.
Útlit er fyrir stjórnarskrárkrísu í bandarískum stjórnmálum og segja fjölmiðlar vestanhafs bréfið á við stríðsyfirlýsingu til þingsins.