Bretar stefna á útgöngu úr Evrópusambandinu í lok þessa mánaðar líkt og staðið hefur til um tíma. Þetta er meðal þess sem kom fram í stefnuræðu Elísabetar Englandsdrottningar á breska þinginu í morgun. Drottningin sagði það vera forgangsmál ríkisstjórnarinnar að ganga úr ESB fyrir 31. október.
Ræðan er samin af liðsmönnum ríkisstjórnarinnar og þar er stiklað á stóru um forgangsmál bresku ríkisstjórnarinnar.
Venju samkvæmt var öllu til tjaldað og drottningin ferðaðist í fullum skrúða með hestvagni frá Buckingham-höll að þinghúsinu. Þá voru þingmenn einnig í sínu fínasta pússi með skikkjur og sumar þingkonur skörtuðu jafnvel kórónum. Ræðan var hins vegar með óhefðbundnum hætt í þetta sinn þar sem mikið hefur gengið á í breska þinginu undanfarnar vikur.
Hæstiréttur Bretlands komst að þeirri niðurstöðu 24. september að ákvörðun Boris Johnson forsætisráðherra landsins að slíta þinginu og sleppa þinghaldi í fimm vikur rétt fyrir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu hafi verið ólögmæt. Þingi var slitið 10. september og starfaði því ekki í tvær vikur.
Johnson hefur ekki meirihluta í þinginu og því er óljóst hvort og hvernig ríkisstjórnin mun koma sínum málum að. Brexit er að sjálfsögðu stærsta málið en 17 dagar eru þar til Bretar eiga að ganga úr Evrópusambandinu, rúmum þremur árum eftir að greidd voru atkvæði um útgönguna í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Johnson greindi ríkisstjórn sinni frá því í gær að mögulegt væri að landa samningi við Evrópusambandið um hvernig staðið yrði að útgöngu landsins úr sambandinu. Möguleg leið lægi fyrir í þeim efnum.
Í ræðu sinni sagði drottningin að ríkisstjórn hennar væri að vinna að nýju samkomulagi við Evrópusambandið þar sem fríverslun og samvinnu væru í forgrunni.
Heilbrigðismál, umhhverfismál og menntamál voru einnig fyrirferðarmikil í stefnuræðu drottningar. Þá sagði hún mikilvægt að bregðast við auknum ofbeldisglæpum í Bretlandi.
Hér má fylgjast með beinni textalýsingu BBC frá stefnuræðu drottningarinnar