Stjórnmálaflokkurinn Lög og réttlæti (PiS) virðist hafa unnið stórsigur í þingkosningunum í Póllandi sem fram fóru í gær. Nú á níunda tímanum höfðu 82,79% atkvæða verið talin og hlaut flokkurinn 45,16% þeirra.
Flokkurinn fer fyrir núverandi ríkisstjórn. Verði þetta niðurstaðan, þegar öll atkvæði hafa verið talin, er fylgi flokksins meira en spár höfðu gert ráð fyrir, en samkvæmt útgönguspám í gær var flokkurinn með 43,6% atkvæða.
Sá flokkur sem fékk næstflest atkvæði, stjórnarandstöðuflokkurinn Borgarabandalagið, KO, fékk 26,1%, sem er minna en útgönguspá hafði gert ráð fyrir sem var 27,4%.
Lög og réttlæti er í sterkum tengslum við kaþólsku kirkjuna í Póllandi og hefur lagt áherslu á umfangsmiklar aðgerðir í velferðarmálum og andstöðu við réttindabaráttu hinsegin fólks. Á kosningahátíð í gær sagði leiðtogi flokksins, Jaroslaw Kaczynski, að mikil vinna væri fram undan. Breytinga væri þörf í Póllandi.
Stjórnmálaskýrendur sögðu fyrir kosningarnar að yrði af sigri PiS myndu líkur aukast á ágreiningi pólskra stjórnvalda við Evrópusambandið vegna mannréttindamála.