Alþjóðlegar hjálparstofnanir hafa neyðst til að hætta starfsemi í norðausturhluta Sýrlands, sex dögum eftir að Tyrkir réðust gegn Kúrdum sem hafast við á svæðinu.
Vegna þessa er ekki hægt að veita flóttafólki viðunandi aðstoð. Talið er að um 275.000 manns, þar af um 70.000 börn, hafi þurft að flýja heimili sín vegna árásanna, að því er segir í tilkynningu frá stjórn Kúrda.
Tyrkir reyna nú að ná landamærabænum Ras al-Ain á sitt vald en sveitir Kúrdar hafa veitt harða mótspyrnu og hófu gagnsókn í nótt. Tyrknesk yfirvöld hafa greint frá því að tyrkneski herinn hafi tekist að hertaka bæinn en fréttmaður AFP-fréttastofunnar greinir frá því að bardagar eigi sér enn stað í Ras al-Ain, sem Kúrdar kjósa að kalla Siri Kani.
Frá því að innrás Tyrkja hófst hefur þeim tekist að hertaka um 100 kílómetra svæði við landamæri Sýrlands og Tyrklands.
Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti lýsti því yfir í morgun að sókn Tyrkja inn í Sýrland yrði haldið áfram þar til markmiðum yrði náð, það er að koma á öryggissvæði sem verði undir stjórn arabískra bandamanna þeirra í Sýrlandi hvar hægt verði að koma 3,6 milljónum sýrlenskra flóttamanna fyrir. Kúrdar segja markmiðið að hrekja Kúrda af svæðinu.