Flugvélaframleiðandinn Boeing hóf auglýsingaherferð um miðjan september með það að markmiði að fullvissa ferðafólk um öryggi 737 MAX-vélanna sem hafa verið kyrrsettar á heimsvísu vegna tveggja flugslysa.
Auglýsingarnar eru í formi 30 sekúndna myndbanda. Þær hafa ekki haft erindi sem erfiði og hafa vakið neikvæð viðbrögð. Sérfræðingur í þessum efnum segir að farþegar séu enn dauðskelkaðir við að fljúga með 737 MAX vél.
Einungis 14% ferðafólks sem ferðast sér til skemmtunar myndi fúslega fljúga með 737 MAX-vél á næstu sex mánuðum.
„Öryggi er kjarni fyrirtækisins. Við höfum fengið hundruð verkfræðinga til þess að tryggja að flugvélin sé alveg tilbúin,“ segir Jennifer Henderson, yfirmaður reynsluflugmanna 737-vélanna, í einni auglýsinganna.
„Þegar 737 MAX verður tekin aftur í notkun mun ég svo sannarlega fljúga með fjölskyldunni minni í slíkri flugvél,“ bætir Jennifer við.
Auglýsingin var m.a. sett inn á Facebook-síðu fyrir áhugamenn um Boeing og uppskar hún þar neikvæð viðbrögð.
„Jæja, ég held að hún hefði ekki getað sagt að vélin væri óörugg,“ sagði einn félagi í hópnum.
„737 MAX er sem stendur ekki velkomin. Farþegar vilja ekki fljúga með henni,“ segir Henry Hartveldt, forseti Atmosphere Research Group í San Francisco við fréttastofu AFP.
„Ferðamenn eru ekki bara hræddir við 737 MAX-vélina. Þeir eru dauðhræddir.“
Einungis 14% ferðafólks sem ferðast sér til skemmtunar myndi fúslega fljúga með 737 MAX-vél á næstu sex mánuðum á móti 19% viðskiptaferðamanna, samkvæmt könnun Atmosphere Research Group. Tæplega helmingur svarenda sagðist myndu greiða meira til að forðast 737 MAX-vélina.
Boeing stendur frammi fyrir því þrekvirki að endurheimta traust flugmálayfirvalda og almennings sjö mánuðum eftir að 737 MAX-vél á vegum Ethiopian Airlines fórst og 157 manns með henni.
Þá hafði 737 MAX-vél Lion Air einnig farist nokkrum mánuðum fyrr og 189 manns með henni. MCAS hugbúnaði 737 MAX-vélanna hefur verið kennt um bæði tilvikin en hann á að auðvelda flugmönnum að fljúga vélinni.
Enn er óvíst hvenær 737 MAX-vélarnar verða teknar aftur í notkun. Boeing hefur enn ekki skilað breyttri útgáfu af MCAS-kerfinu til eftirlitsaðila. Fyrirtækið vonar þó að það verði fyrir lok ársins.