Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, og Vladimir Pútín Rússlandsforseti munu funda í Sochi í Rússlandi í dag um stöðu mála í Sýrlandi. Forsetarnir hyggjast ræða kröfu Tyrkja um svokallað öryggissvæði í Kúrdistan, í norðausturhluta Sýrlands, þar sem átök hafa verið á milli hersveita Tyrkja og Kúrda.
Umrætt svæði er um 444 kílómetra langt, nær að landamærunum að Írak og er um 30 kílómetra breitt. Tilgangur Tyrkja með öryggissvæðinu er annars vegar að halda sveitum Kúrda frá landamærunum að Tyrklandi og hins vegar að þangað verði sendur hluti þeirra 3,6 milljóna flóttamanna frá Sýrlandi sem hafast nú við í Tyrklandi.
Á fimmtudaginn tilkynnti Erdogan að Tyrkir myndu láta af árásum á svæðinu næstu 120 klukkustundirnar eða fram á kvöldið í kvöld með því skilyrði að Kúrdar myndu draga herlið sitt á brott af svæðinu. „Gangi það eftir munum við halda okkar striki,“ sagði forsetinn við þetta tækifæri. „Ef ekki, þá munum við hefja aftur aðgerðir á mínútunni um leið og þessir 120 klukkutímar eru liðnir.“
Erdogan sagði við fréttamann AFP-fréttastofunnar á flugvellinum í Ankara, rétt áður en hann steig um borð í flugvélina sem flytja átti hann á fund Pútíns, að Tyrkir myndu ganga fram af enn meiri hörku, færu Kúrdar ekki að kröfum þeirra.
Rússar og Tyrkir eru þær erlendu þjóðir sem einna mesta íhlutun hafa haft í átökunum í Sýrlandi sem staðið hafa yfir síðan vorið 2011 og Rússar hafa verið helstu bandamenn Assads forseta Sýrlands. Í síðustu viku komu rússneskir hermenn í stað þeirra bandarísku sem yfirgáfu landið að skipan Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.
Pútín hefur krafist þess að Tyrkir virði landamæri Sýrlands. „Það mikilvægasta frá okkar sjónarhorni er langtímastöðugleiki í Sýrlandi og á þessu svæði,“ sagði Yuri Ushakov, ráðgjafi Pútíns í utanríkismálum, áður en fundurinn hófst. „Við teljum að það geti ekki gerst öðru vísi en að Sýrland verði ein heild á ný.“
Í gær gagnrýndi Erdogan vesturveldin harðlega fyrir að styðja ekki aðgerðir Tyrkja gegn Kúrdum í norðurhluta Sýrlands og sakaði þau um að „standa með hryðjuverkamönnum“. Nú í morgunsárið hafnaði hann beiðni Macrons Frakklandsforseta um að framlengja vopnahléið.