Norska útgáfufélagið Cappelen hefur hætt við að gefa út bók eftir seiðmanninn Durek Verrett, sem er kærasti Mörtu Lovísu Noregsprinsessu. Knut Ola Ulvestad, forstjóri forlagsins, segir í samtali við norska dagblaðið Verdens Gang að kenningar Dureks geti verið skaðlegar og hann vilji ekki bera ábyrgð á því að fólk taki þær bókstaflega.
Umrædd bók heitir Spirit Hacking og undirtitill hennar er „Aðferðir seiðmannsins til að endurheimta persónulega orku“. Hún hefur þegar komið út á fjölda tungumála, hún hafði verið þýdd á norsku úr ensku og átti að koma út núna í október. Þegar forstjórinn áttaði sig á því að í bókinni væru margar vafasamar fullyrðingar, m.a. um að börn fái krabbamein vegna þess að þau séu óhamingjusöm, var þegar í stað hætt við útgáfuna.
Meðal þeirra sem hafa gagnrýnt ákvörðun útgáfufélagsins er Marta Lovísa Noregsprinsessa. Á Instagram-síðu sinni segir hún bókina einstaka og hún geri þá sem lesi hana að betra fólki. „Hættið að elta það sem aðrir segja,“ skrifar prinsessan og segist vera stolt af seiðmanninum, kærasta sínum.
Marta Lovísa er eldra barn Haraldar 5. konungs og Sonju drottningar og fjórða í erfðaröð norsku krúnunnar, á eftir Hákoni bróður sínum og börnum hans. Hún giftist norska rithöfundinum Ari Behn árið 2002 en þau fengu lögskilnað 2017. Hún kynnti Verret sem unnusta sinn á samfélagsmiðlum í maí síðastliðnum og greindi síðan frá því að þau hygðust fara saman í fyrirlestraferð undir yfirskriftinni „Prinsessan og seiðmaðurinn“ þar sem þau fjalla um andleg málefni. Í kjölfarið var prinsessan hvött til að afsala sér prinsessutitlinum vegna þess að hún væri að nota hann til að markaðssetja fyrirtæki sitt.
Marta Lovísa afsalaði sér titlinum „konungleg hátign“ og lífeyri frá konungshöllinni árið 2002 og sagðist þá vilja frelsi til að sinna áhugamálum sínum. Síðan þá hefur hún m.a. rekið englaskóla og skrifað bækur um engla.
„Þessi ákvörðun snýst um siðferði. Að hugsa með hjartanu,“ sagði Ulvestad í samtali við Verdens Gang. „Þegar ég las í gegnum kaflann þar sem fjallað er um krabbamein sá ég að það kæmi ekki til greina að gefa þessa bók út. Ef fólk tæki bókstaflega það sem þarna er haldið fram, þá gæti það verið hreint út sagt lífshættulegt,“ segir Ulvestad.