„Nokkuð rosalegt var að gerast!“ skrifaði Donald Trump Bandaríkjaforseti á Twitter-síðu sína í nótt. Hann útskýrði ekki nánar hvað þetta rosalega er en fjölmiðlar vestanhafs telja að bandarískir hermenn hafi drepið Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtoga Ríkis Íslams.
Það hefur ekki verið staðfest en fram kemur í tilkynningu frá Hvíta húsinu að Trump muni flytja „meiriháttar“ tilkynningu klukkan níu að staðartíma, eitt eftir hádegi að íslenskum tíma.
Something very big has just happened!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) October 27, 2019
Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs var Baghdadi felldur af bandarískum sérsveitarmönnum í aðgerð í norðvesturhluta Sýrlands í gær. AFP greinir frá því að mögulega hafi Baghdadi sprengt sjálfan sig í loft upp með sprengjubelti í miðri aðgerð Bandaríkjahers.
Háttsettur bandarískur embættismaður staðfesti við Reuters að herinn hefði tekið þátt í stórri aðgerð í gær en gat ekki svarað því hvort Baghdadi hefði fallið.
Síðast sást til Baghdadi, sem er 47 ára, í áróðursmyndbandi sem Ríki Íslams sendi frá sér í apríl. Áður hafði hann ekki sést opinberlega í fimm ár en árið 2014 lýsti hann yfir kalífadæmi Ríkis íslams á þeim svæðum sem samtökin höfðu lagt undir sig í Sýrlandi og Írak. Síðan þá hafa margar fregnir borist af því að hann hefði verið drepinn eða hann særst.