Þremur af fimm sleppt úr haldi

Maurice Robinson hefur verið ákærður fyrir 39 manndráp.
Maurice Robinson hefur verið ákærður fyrir 39 manndráp. Skjáskot/Facebook

Þremur af fimm sem handtekin voru vegna líkfundarins í Essex í Englandi á miðvikudag hefur verið sleppt úr haldi. Manni og konu sem handtekin voru í Warrington á föstudag og manni sem handtekinn var í Dublin í gær var sleppt.

Öll voru þau grunuð um aðild að manndrápi og mansali.

Ökumaður bílsins, þar sem líkin 39 fundust, kemur fyrir dómara á morgun. Hann hefur verið ákærður fyrir manndráp, mansal og peningaþvætti.

Alls fund­ust lík átta kvenna og 31 karl­manns í tengi­vang­in­um. Fórnarlömbin voru frá Víetnam og Kína.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert