Alþjóðaglæpadómstóllinn í Haag hefur gert „Tortímandanum“, stríðsherranum fyrrverandi, Bosco Ntaganda, að afplána 30 ára fangelsisdóm fyrir glæpi gegn mannkyninu í Austur-Kongó.
Dómstóllinn úrskurðaði nú í sumar að hann væri sekur um glæpi á borð við nauðgun, morð og fyrir að stofna barnaher, þar sem hann nauðgaði stúlkum, en ekki var tilkynnt um dómslengdina fyrr en í dag.
BBC segir Ntaganda vera þann fyrsta sem Alþjóðaglæpadómstóllinn hefur dæmt sekan um kynferðisglæpi og er þetta líka lengsti dómur sem dómstóllinn hefur veitt.
Dómari í Haag sagði að Ntaganda hefði gefið skipanir um að ráðast á og myrða almenna borgara í Ituri-héraði í Kongó á árunum 2002 og 2003.
Ntaganda gaf sig fram við sendiráð Bandaríkjanna í Kigali árið 2013 og var sakaður um að hafa stýrt hundruðum árása í Austur-Kongó. Árása sem kostuðu fleiri hundruð ef ekki þúsundir, lífið.
BBC segir hann þó hafa átt aðild að fjölda annarra vopnaðra átaka í bæði Rúanda og í Lýðveldinu Kongó.