Donald Trump Bandaríkjaforseti gerði lítið úr Micheal Bloomberg fyrrverandi borgarstjóra New York-borgar og mögulegu forsetaframboði hans, þegar Trump ræddi við blaðamenn fyrir utan Hvíta húsið fyrr í dag.
„Hann er ekki gæddur töfrunum til að standa sig vel. Michael „litla“ mun mistakast,“ sagði Trump er hann var spurður um orðróma þess efnis að Bloomberg muni gefa kost á sér í forvali Demókrataflokksins vegna forsetakosninganna í Bandaríkjunum á næsta ári.
Búist er við því að Bloomberg, sem er 77 ára gamall, muni gefa formlega kost á allra næstu dögum. Hann lýsti því þó yfir í mars á þessu ári að hann myndi ekki bjóða sig fram.
Fjölmiðlar vestanhafs segja að honum hafi snúist hugur og að starfsfólk á hans vegum sé þegar byrjað að safna undirskriftum fyrir hans hönd. Haft hefur verið eftir heimildarmanni dagblaðsins New York Post að Bloomberg telji Joe Biden, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, of veikan frambjóðanda. Frestur til að tilkynna framboð rennur út í dag, föstudag.
Ráðgjafi Bloomberg, Howard Wilson, sagði í yfirlýsingu að Bloomberg ætlaði sér að tryggja að Trump næði ekki endurkjöri í embætti forseta Bandaríkjanna á næsta ári.
„Hann mun ekki standa sig vel, ég held að hann muni skaða möguleika Biden,“ sagði Trump einnig við fjölmiðla í dag og bætti því við að það væri enginn sem hann væri frekar til í að vera í kosningabaráttu á móti heldur en „litla“ Michael.
Bloomberg, sem er einn auðugasti maður Bandaríkjanna, var borgarstjóri New York-borgar frá 2001—2013. Hann hefur ýmist verið í Repúblikanaflokknum, Demókrataflokknum eða sjálfstæður frambjóðandi.
Sautján frambjóðendur etja þegar kappi í forvali Demókrataflokksins.