Fransk- pólski kvikmyndaleikstjórinn Roman Polanski hyggst sækja franskt dagblað sem birti nauðgunarásökun á hendur honum til saka. Í blaðinu, Parisien, er Polanski ásakaður um að hafa nauðgað fyrrverandi leikkonu á áttunda áratugnum. Hún var þá átján ára gömul.
Polanski hefur áður verið sakaður um nokkur önnur kynferðisbrot og verið dæmdur fyrir að nauðga þrettán ára stúlku árið 1977.
Í fréttinni sem birtist í Parisien á föstudag segir Valentine Monnier, ljósmyndari og fyrrverandi leikona, frá því þegar Polanski réðst á hana og nauðgaði henni við smáhýsi hans á svissneska skíðasvæðinu Gstaad árið 1975. Þá var Monnier átján ára gömul.
Hún segir að Polanski hafi reynt að láta hana kyngja pillu á meðan árásinni stóð og síðar meir baðst hann afsökunar með tárin í augunum og grátbað Monnier um að lofa sér að segja engum frá því sem gerðist.
„Ég hélt að ég myndi deyja,“ sagði Monnier í opnu bréfi sem birt var í Parisien ásamt viðtali við hana. Blaðið hafði samband við vitni sem staðfestu frásögn Monnier.
Hún er fyrsta franska konan sem sakar Monnier um kynferðisofbeldi en kvikmynd hans J'accuse, eða upp á íslensku „Ég ásaka“, kemur út á miðvikudag.
„Herra Polanski mótmælir þessari nauðgunarásökun harðlega,“ sagði Herve Temime, lögmaður Polanskis, í yfirlýsingu.
„Við erum að vinna að málshöfðun gegn útgáfunni,“ bætti Temime við.