George Pell, fyrrverandi fjármálastjóri Páfagarðs og kardínáli, fær lokatækifæri til að sýna fram á sakleysi sitt í barnaníðsmáli þegar hæstiréttur Ástralíu tekur mál hans fyrir. Hæstiréttur hefur samþykkt að taka við áfrýjun málsins, að því er greint er frá á vef BBC.
Pell var dæmdur fyrir að hafa beitt tvo drengi kynferðislegu ofbeldi í Ástralíu. Aldrei áður hefur jafn hátt settur einstaklingur innan kaþólsku kirkjunnar verið dæmdur fyrir barnaníð. Pall beitti 13 ára gamla kórdrengi kynferðisofbeldi í dómkirkju í Melbourne árið 1996, samkvæmt niðurstöðu tveggja undirdómstóla í Ástralíu.
Kardínálinn, sem er 77 ára gamall, heldur því statt og stöðugt fram að hann sé saklaus.